Bráðgóð ferð til Baunalands

Þó að það sé ekki nokkurt vit að yfirgefa vað fara í víking til Baunalands og taka land í Billund. Byrjað var á að heimsækja plastkalla og kerlingar í Legolandi og var land það svo víðfeðmt og margt markverðra hluta að skoða að eyða þurfti þar 2 dögum. Var land það kvatt með trega og haldið á slóðir víkinga í Ribe og þeir heimsóttir á safni einu sem þeir eru nú hafðir til sýnis fyrir gesti og gangandi. Svo varð auðvitað að kíkja á Jóakim og Marie í Mögeltonder og sjá hvernig þau byggju. Leit það allt ljómandi vel út fagrir akrar, reisuleg hús og glæsileg var kirkjan sem þau giftu sig í, ja maður lifandi hefði einhver sagt. Þá var tekið hús á vinum í Horsens og lagst upp á þá það sem eftir var. Margt áhugavert bar fyrir sjónir og farið í udflugt í ljónagarðinn, Egeskov (vá bílarnir, vá mótorhjólin svo óteljandi) og iðnaðarsafnið í Horsens svo eitthvað sé nefnt. Það er ljóst að ekki næst að skoða allt markvert í Baunalandi á einni viku svo fara verður aftur í víking síðar e.t.v. þegar gengið er hagstæðara Tounge .

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband